22febrúar
Kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hvað maður fær mikla orku við að fara í ræktina. Nú er ég búin að ná takmarkinu varðandi ferðir í ræktina en ég er búin að fara 4 sinnum í vikunni og stefni á að fara í fimmta skiptið á laugardaginn. Finnst svo geggjað að eiga þarna tíma með sjálfri mér, hugsa og vera laus við allt áreiti og fara svo í heita sturtu á eftir.
Mataræðið hefur gengið vel, er ekki alveg að ná að klára alltaf alla skammtana mína á DDV en reyni eins og ég get. Hinsvegar hef ég ekkert verið að kaupa mér súkkulagði sem vildi nú alveg gerast...
Drekk mikið vatn og tek vítamín á hverjum morgni og líður bara ofsa vel.
Vonandi gengur öllum vel...
20febrúar
já já þetta er allt að koma... meira hvað hugurinn skiptir miklu máli - já og svo auðvitað skellurinn í andlitið við að stíga á vigtina. Búin að bæta á mig einum 7 kg síðan í júlí. Hvernig er þetta hægt????
Jú kannski með því að vera alltaf að fá sér smá og smá óhollustu. Einn biti hér, einn þar og svo kíló hér og annað þar!
Nú er ég bara hætt þessari sjálfsblekkingu og vitleysu. Ég ætla að ná kjörþyngd - því ég er fullviss um það að þegar henni er náð er sennilega auðveldara að halda sér. Rokkið minnkar vonandi...
Svo er líka bara ljótt og leiðinlegt að vera þungur, þrútinn og í lélegu formi...
Svo hef ég líka aðeins verið að berjast við óþolinmæðina í mér - Vil bara vera komin í þá þyngd sem ég búin að ná NÚNA - en fyrst ég hef tíma til að gera ekki neitt, éta óreglulega, og sætindi þegar mér dettur til hugar hef ég sko alveg eins tíma í að létta mig.. Ég er ekki að fara neitt...
Annars er ég að reyna að miða við mataræðið á danska. Ég fer samt ekki í vigtun búin að borga tvisvar gjaldið því að ég var erlendis allt síðasta sumar - svo kom ég aftur veiktist, fór erlendis aftur og datt út... Ég bæði tími ekki að borga aftur og svo finnst mér eitthvað hálfaulalegt að koma aftur og aftur og alltaf þyngri ehehehhe er þetta vitleysa í mér?? næ ég ekki árangri nema að fara í vigtunina!
Í dag hef ég alveg staðið við DDV mataræðið, búin að vera síðan á laugardaginn að "rétta" mig við ef svo má að orði komast... Grænmetið komið, fitan (drakk kokteilsósu með kjúllanum hehehe aldrei vitað annað eins) lax í hádeginu með melbatoast, mjólkin komin, egg í morgunmat og ávöxtur og 4 ávexti komnir!!
Var búin með mína 2 lítra af vatni um hádegi og smellti mér líka á hlaupbrettið í hádeginu!
Allt á rétti leið???
Mín leið til árangurs er bara pottþétt að taka aldrei bita af nammi eða óhollustu, vera alltaf með hugann við það sem ég læt ofaní mig.... og ég er ekki að vorkenna mér...
*Mér líður betur andlega
*ég sef betur
*ég hef meiri einbeitingu í vinnunni
*ég er betri mamma þegar ég kem heim
*mér líður betur í fatabúðum:)
*meltingakerfið er afar þakklátt
*enginn bjúgur
* meiri orka yfir daginn sem kemur mér í ræktina....
Markmið mitt er að fara í ræktina amk 3 í viku - meira er bara plús fyrir mig...
Ég ætla að losa mig við 15 kg og taka 5 fyrir í einu,,,
Ég vigtaði mig á laugardaginn og kem með árangurstölur næsta laugardag...
Gangi öllum vel í baráttunni við þennan ljóta púka....
15febrúar
Ætla að nota bloggið til að hvetja mig áfram í að hrista af mér eins og ein 10 kg til að byrja með;) Ég er kona á besta aldri, vil nú eiginlega bara meina að ég sé stelpa, svona rétt að stíga í þrítugt.
Alltaf verið of svona eitthvað aðeins of þung og eiginlega verið nokkuð sama bara um það, síðan átti ég barn og fann vel fyrir mikilli þyngdaraukningu sem ég var ekki sátt við. Eftir fæðinguna fannst mér ég var að kafna úr spiki og reyndi að grenna mig með hollu mataræði og örari göngutúrum, fór í ræktina sem mér fannst ekkert sérlega gaman, en missti kannski einhver sex kg... Þau komu fljott á aftur. Fyrir rúmu ári fór ég á DDV, það gekk vel, missti 16 kg og leið ofsalega vel, síðan komu páskar og sumarfrí og ég einhvern veginn missti taktinn og náði mér aldrei á stik, hélt mér í þónokkurn tíma en svo hafa svona 6 kíló komið á mig aftur og þau mega sko fara veg allrar veraldar mín vegna....